Um mig
Ég er Kristján Guðmundsson, sálfræðingur, heimspekingur, og kennari. Fyrir neðan eru upplýsingar um sálfræðiþjónustuna. Fyrir fyrrum nemendur í námskeiðum í HR og enn eldri nemendur Kvennaskólanum þá er beinn aðgangur að nemendasíðum í hlekkjum hér til hægri (að ofan).
Sálfræðingur
Ég býð upp á alhliða sálfræðiþjónustu. Eftir 40 starf sem sálfræði- og heimspeki-kennari:
Kvennaskólinn í Reykjavík 1983-2019: Sálfræðikennari: Allir almennir Sálfræði- og Heimspeki-kúrsar og Menningarsaga. Margir nýir valkúrsar: t.d. Réttarsálfræði og Kvikmyndasálfræði. Námsráðgjafi Kvennaskólans mest allan tímann þar.
Háskóli Íslands 1984-1993: a) Sálfræði og Tölvunarfræði: Tölvulíkanið í sálfræði (gervigreind) og Aðferðir I (með Þorláki Karlssyni). b) Sagnfræði: Aðferðir I (með Önnu Agnarsdóttur og Eggerti Þór Bernharðssyni). c) Námsráðgjöf: Inngangur að námsráðgjöf (með Gerði G. Óskarsdóttur) og Persónuleg og félagsleg vandamál (með Inga Jóni Haukssyni og Ástu Ragnarsdóttur). d) Eðlisfræði: Vísindasaga (með Þorsteini Vilhjálmssyni). e) Heimspeki: Fornaldarsaga með (Páli Skúlasyni, Mikael Karlssyni og Þorsteini Gylfasyni).
Háskólinn í Reykjavík 2014-2026: a) Straumar og stefnur í sálfræði í sögulegu ljósi (saga sálfræði); skyldukúrs á öðru ári (10 sinnum). b) Klínísk sálfræði; skyldukúrs á 2ru ári; 3svar. c) Kvikmyndasálfræði; valkúrs í sálfræði (3svar). d) Siðferði og siðblinda; valkúrs í sálfræði og í lögfræði (4rum sinnum). e) Heimspeki atferlisgreiningar; skyldukúrs á 2ru ári í meistaranámi í Atferlisgreiningu (5 sinnum).
Eftir langvarandi Námsráðgjöf við Kvennaskólann í Reykjavík hef ég nú verið með einstaklingsbundna sálfræðiráðgjöf, fyrst í 16 ár í Kjörgarði (með öðrum sálfræðingum í Sálfræðiráðgjöfinni) og síðan í eitt ár með sama fólki í Sálfræðiráðgjöfinni á Lækjartorgi. Opnaði síðan mína eigin stofu á Lækjartorgi (sjá myndir að neðan) og er með viðtöl alla virka daga. Ég stunda alhliða sálfræðiráðgjöf (hugræn atferlismeðferð) og starfaði fyrst sérstaklega mikið með yngra fólki, bæði á framhaldsskóla- og háskólastigi. Skjólstæðingar eru nú á öllum aldri. Dæmigerð vandamál til meðferðar eru: Þunglyndi, kvíði, fíknir, áföll, samskiptavandi, náms- og atvinnutengdur vandi og margt fleira. Til að panta tíma gjörðu svo vel að hafa samband í síma 821-4714 (hringja eða sms) eða í tölvupósti: drkrigud@gmail.com.
Hef tekið saman flokkun geðraskana og gefið út í bókarformi. Bókin er nú í endurskoðun og væntanleg í endanlegri útgáfu á næsta ári. Bókin er samantekt á tveimur flokkunarkerfum geðraskana: DSM frá Bandaríkjunum og ICD frá Evrópu. Í bókinni er að finna skilgreiningu og útskýringum með dæmum á öllum geðröskunum, sett upp í einfalt kerfi. Sjá bókarkápu hér til hliðar:
Kristján Guðmundsson. 2014. Flokkun geðraskana: DSM-5 (DSM = Diagnostic and Statistical Manual of Mental Disorders), en væntanlega nýja útgáfan tekur líka til ICD-11 (ICD = International Classification of Disorders).
SJÁ NÚVERANDI VIÐTALS AÐSTÖÐU Á MYNDUM HÉR FYRIR NEÐAN:
Hafnarstræti 20 / Lækjartorg 5, stendur á hurðinni hægra megin við Te & Kaffi.
Inngangurinn er hurðin hægra megin við þar sem krakkarnir standa.
Inngangurinn.
2. hæð, inn ganginn.
Staðsetning
Sálfræðiþjónustan fer fram á Lækjartorgi. Heimilsfang: Lækjartorg 5 / Hafnarstræti 20, 101 Reykjavík (svarta húsið á Lækjartorg - 2. hæð). Vertu velkomin(n) inn á kaffistofuna og ég kem fram og sæki þig þegar tíminn byrjar.
Menntun
Stúdentspróf af eðlisfræðibraut, Menntaskólinn við Hamrahlíð, 1974.
B.A. í sálfræði og heimspeki, Háskóli Íslands 1978.
M.A. í heimspeki, University of Western Ontario, Kanada, 1979.
Ph.D. í vísindaheimspeki, University of Western Ontario, Kanada, 1983.
Leyfisbréf: Framhaldsskólakennari, Háskóli Íslands, 1989.
EABCT meðferðarnám í hugrænni atferlismeðferð, 2001.
M.A. í sálfræði, Háskóli Íslands, 2008.