Hér sérðu 2 x 10 myndir, sem ég setti upp. Ég hugsaði bara: Hvaða yfirkafla (1-10 og 11-20) minnir þessi mynd mig á? Létt verkefni. Hér þarf bara að nefna yfirflokkinn (þ.e. kaflaheitið). Nefnið hvern kafla bara einu sinni.
FYRSTU 10 DÆMIN ERU ÚR KAFLA 1-10, EINU SINNI ÚR HVERJUM KAFLA.
Mynd 3. Hvað kemur í hugann hér? Reyndu að sjá þennan trédreng þannig að hann getur brugðið í báðar áttir. Hjálpar þessi vísbending?
HÉR KOMA 10 MYNDIR SEM DEKKA KAFLA 11-20, RÉTT EINS OG ÁÐUR!
Mynd 11. Einhver al-flottasti karakter kvikmyndanna (ef svo má að orði komast) er Jeff Bridges sem The Dude í The Big Lebowski mynd þeirra Cohen bræðra. Hvað gæti hann staðið fyrir?
Nú er bara að svara þessu eins og áður, þið hafið fram að mánaðarmótum (1. feb. 2023). Sjá Assignments: 20 Ljósmyndir.