þátttökusekt

Rökvilla 11: Þátttökusekt

11.0. KYNNING Á RÖKVILLUNNI ÞÁTTTÖKUSEKT

Hér á eftir kemur kynning á rökvillunni Þátttökusekt, sem eru nokkuð lík þeim seinastnefndu, í því að vera algengar í röklegum átökum. Núna er þó áherslan á sókn. Viðkomandi ver sig með gagnárás. Kynnumst þessari rökvillu nánar. Rökvillan í Þátttökusekt fæst með því að gera árás á hóp sem viðkomandi er e.t.v. í, en aftur á móti í Persónuárás með því að ráðast beint á hann sjálfan. Ekki rugla þessu saman. Persónuárás er árás á persónuna, en Þátttökusekt slengir persónunni í e-n hóp, sem hann er kannski ekki í og þótt svo væri, þá þarf hann ekki að vera sammála öllu því sem sá hópur þykir standa fyrir. Þegar þú kallar óánægða húsmóður „helvítis kvenréttindakellingu“ eða bindindismann „stórstúkara“ og hernámsandstæðing „Rússakomma“ er hætta á að þú dæmir einstaklinginn fyrir það eitt að hafa skoðun er líkist baráttumálum einhverra samtaka. En eins og við vitum þá er ljóst að þótt meðlimir samtaka hafi einhver sameiginleg áhugamál, þá er ekki þar með sagt að allar skoðanir þeirra séu eins. Þátttökusekt er rökvilla vegna þess að viðkomandi er ekki gagnrýndur fyrir þá skoðun sem hann í raun hefur, heldur fyrir hugsanleg tengsl skoðunar hans við einhver samtök. Þessi villa er nokkuð algeng, sérstaklega frá þeim sem sjá allt í fyrirfram ákveðnum skorðum, gott eða vont, vinstri eða hægri, svart eða hvítt, kommi eða íhald. Við erum því miður allt of oft að eigna fólki ákveðnar skoðanir annarra. Ef við ráðumst eingöngu á fólk í gegn um hugsanleg tengsl við samtök þá erum við sek um rökvilluna Þátttökusekt.

 

11.1. SKILGREINING Á RÖKVILLUNNI ÞÁTTTÖKUSEKT

Formleg skilgreining á rökvillunni 11. Þátttökusekt (guilt by association):

  1. Y ræðst að X (eða á stöðu hans) á grundvelli mögulegra tengsla X (eða stöðu hans) við einhverja aðra persónu, hóp eða skoðun.
  2. Annað hvort er ekki um nein slík tengsl að ræða, eða
  3. Slík tengsl eru ekki nægjanlegur stuðningur fyrir árás Y á X.

 

11.2. DÆMI UM RÖKVILLUNA ÞÁTTTÖKUSEKT

Úr spjallþætti í sjónvarpi:

Jón: Ég held því fram að ríkið eigi að auka fjárútlát til félagsmála.

Spyrill: Herra mínir og frúr. Herra Jón er að mæla með kommúnistaríki!

 

11.3. ÚTSKÝRING Á DÆMI UM RÖKVILLUNA 11. ÞÁTTTÖKUSEKT

Hér er rökvillan Þátttökusekt greinileg, því í stað þess að ræða fullyrðingu gestsins (um aukin fjárútlát til félagsmála), þá er aðeins bent á að skoðun hans líkist einhverju, sem er þó allt annað og viðameira en hér er verið að tala um.

 

11.4. MYNDRÆN DÆMI UM 11. ÞÁTTTÖKUSEKT

Myndrænt dæmi 1 um Þátttökusekt: "Guilt by association".

 

Myndrænt dæmi 1 um Þátttökusekt: Skýringardæmi. Ef bent er á að rök mín minni á rök nasista, stórfyrirtækja eða Frakka (til dæmis), þá er það rökvilla ef það síðan á að dissa mig fyrir ýmsar skoðanir sem nasistar, stórfyrirtæki eða Frakkar eru dæmigert með, en ég hef ekkert sagt um. Ég gæti til dæmis verið sammála einhverju sem Hitler lagði áherslu á (hann vildi t.d. að allir gætu átt ódýran bíl, “volkswagen”). Það finnst mér t.d. góð hugmynd. Er ég þá nasisti?

 

Myndrænt dæmi 2 um Þátttökusekt: "We also find the...".

 

Myndrænt dæmi 2 um Þátttökusekt: Mjög gott dæmi. Kviðdómendur meta það svo að hinn ákærði sé sekur og þar sem lögfræðingurinn er að verja hann, þá er hann það líka ! Raunar er þessi villa þekkt hjá okkur öllum, er það ekki? Erum við ekki með frekar neikvæða skoðun á þeim lögfræðingum sem taka að sér að verja svokallaða glæpamenn?

 

Myndrænt dæmi 3 um Þátttökusekt: "Dude, I've got some bad news".

 

Myndrænt dæmi 3 um Þátttökusekt: Svolítið djúpt dæmi um Þátttökusekt. Þið hafið eflaust heyrt kenninguna um “six degrees” og “small world phenomenon” = Any individual can be linked through his or her film roles to actor Kevin Bacon within sex steps.

 

Myndrænt dæmi 4 um Þátttökusekt: "Guilt by association is ...".

 

Myndrænt dæmi 4 um Þátttökusekt: Sarah Pahlin (sem reyndi seinast að verða forsetaframbjóðandi Repúblikana) hefur sjálf oft verið ásökuð um að færa rök sem falla undir rökvilluna Þátttökusekt.
 

Reynið að skilja þessar ræður hennar!

 

https://www.youtube.com/watch?v=fsEoqm0paww

 

Hér er safn af snilld hennar!

 

https://www.youtube.com/watch?v=NrzXLYA_e6E

 

Hvað finnst þér um þessa árás á Söru?

 

https://www.youtube.com/watch?v=a-8aMbzMD04

 

Myndrænt dæmi 5 um Þátttökusekt: "The only difference ...".

 

Myndrænt dæmi 5 um Þátttökusekt: Almenningsálit er að breytast gagnvart tatoo. Áður voru þetta bara sjómenn, glæpamenn “og aðrar fyllibyttur”. Þátttökusekt!

 

Myndrænt dæmi 6 um Þátttökusekt: "Forsetafrú og Gacy".

 

Myndrænt dæmi 6 um Þátttökusekt: Óheppileg ljósmynd! Hér sést forsetafrú Bandaríkjanna 6. maí 1978 taka í höndina á manni, sem heitir John Wayne Gacy á samkomu í Chicago, sem heitir Polish Constitution Day Parade (pólskir innflytjendur í Bandaríkjunum að fagna lýðræði í Póllandi). Gacy stjórnaði athöfninni og fékk leyfi og rétt hjá CIA til að taka í hönd forsetafrúar og fá mynd af sér við það tækifæri. Aðeins 2 mánuðum fyrr féll niður kæra 27 ára manns, sem kvartaði til lögreglu að Gacy hafi boðið sér upp í bíl til að reykja hass, en þá var hann svæfður með klóróformi, honum nauðgað og hann pyntur. Kæran var felld niður vegna skorts á sönnunargögnum. Gacy var seinna aflífaður fyrir sambærileg mál og morð á yfir 30 ungum drengjum.

 

Hér játar Gacy óvart hvernig hann pyntaði drengi:

 

https://www.youtube.com/watch?v=8M6Kx5S6lRA

 

En þrátt fyrir allt þá hefur forsetafrúin ekkert með þetta að gera og myndin er einungis óheppileg fyrir hana.

 

Skilaverkefni:

  1. Finndu dæmi um einhvern sem fellur fyrir Þátttökusektar rökvillunni, þetta er t.d. mjög algengt í pólitískri umræðu. Útskýrðu dæmið stuttlega. Donald Trump?
  2. Viðurkenndu (ef þú getur - annars býrðu dæmið bara til - ef þú ert svona fullkomin!) hvernig þú sjálf hefur fallið fyrir rökvillunni Þátttökusekt.